Þjónusta Gagnagnóttar ehf sem umbreytir skrám af einu gagnaformi yfir á annað.
Þessari vefsíðu er ætlað að aðstoða fyrirtæki við að umbreyta skrám af einu gagnaformi yfir á annað. Það fyrsta sem við bjóðum upp á er að umbreyta hreyfingalistum úr netbönkum yfir á CSV- eða OFX-snið sem bókhaldskerfið Xero les inn sem bankayfirlit. OFX-skráin flyst inn í Xero án þess að þurfa að para saman dálka.
Stuðningur er við XML-skrár frá Arion banka og Excel-skrár frá Íslandsbanka og Landsbankanum, auk kreditkortayfirlita frá Íslandsbanka. Skráin er lesin eftir innihaldi, ekki skráarendingu, svo það skiptir ekki máli þótt netbankinn vistar xlsx-skrá með endingunni xls.